Eldri fréttir

Mon Cherie
Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn var sóttur í dag

Dagbjört Sól

Veljið myndina og þá kemur video - Fötin eru frá Finlandi.


Skipó 09

Hér eru söngbækur Skipó til að hafa fyrir útilegunna

Gömul lög

Ný lög

__________________________________________________________
 

RockWall

The newest band in Denmark

There is available video from the first consert while you need to contact us using

brostu at brostu.dk and we will send you the path.

FRÉTTIR:

25.03.07 Skírn - Dagbjört Sól hefur verið skírð í St. Pauls kirkju í Kaupmannahöfn.  Takk allir fyrir allar gjafirnar og við þökkum þeim sem komu til okkar á þennan frábæra dag.

kv, Ásta og Lalli

26.12.06 Eitthvað hefur borist til okkar um að fólk vilji sjá fleirri myndir af stúlkunni okkar og hér eru tvær en endilega sendið okkur póst á brostu hjá brostu.dk ef þú vilt vera með aðgang að læstu síðunni en þar eru fleirri myndir ( það týndist nefnilega email addressu listinn :( ... )

22.12.06 Í dag fæddist stúlka Lárusdóttir - 54 á lengd og 4965g á þyngd.  Hún fæddist kl. 06:50 að staðartíma á Hróarskeldu spítala (Roskilde).  Hér er mynd af henni.

 

17.10.06 Allt gott að frétta - Netið komið í gang aftur eftir árás á gestabókina og er hún því ekki með núna.  Öllum líður vel og lífið gengur sinn vana gang.  Þessi vika er haustfrí í skólunum og eru strákarnir hæst ánægðir að vera bara heima og hafa það nokkuð gott.

6.6.06  Það nýjasta er að Kristófer er kominn í gifs - Hann var að leika sér og það var hoppað á hann svo líklega hefur brákast brjósk í öklanum.  Hann á að vera með þetta í 10-14 daga og vonandi getur hann þá farið að leika sér aftur.

Einnig brá svo við að við frúin skelltum okkur í sveitina og keyptum tjaldvagn - Það er Camp-let (auðvitað danskt) sem er árgerð 2000 og lítur ljómandi vel út.

Þetta var aðallega því tengdamamma hótaði því að fara "út í bæ" að gista næst þegar hún kæmi - Nú getur hún það - Alveg út á stétt eða í garðinn

12.4.06  Síðustu helgi var fjölskyldan öll á Íslandi.  Ástæðan var að Guðmundur var að fermast.  Það tókst að vonum vel enda strákurinn búinn að vera í allan vetur í fermingafræðslu.

Ekki tókst að heimsækja eða hafa samband við alla en við reynum betur næst.

Hér er jólakortið okkar á rafrænu formi þetta árið

Jolakort 2005

And also in English for those who don't understand the most beutiful language in the world here is our Christmas greeting card this year

Christmas card 2005

Fyrir þá sem eru ekki með Microsoft PowerPoint þá er hér viewer til að hjálpa (fenginn frá microsoft.com

PP viewer

30.6.05 - Gestir, Sumarleyfi, stuttar ferðir og fleirra.

Stærsta viðburðurinn er að Guðmundur er kominn til okkar og ætlar að vera í nokkrar vikur.  Hann var ekki í fylgd og reddaði þessu öllu saman bara sjálfur, kom svo gangandi eins og greifi út úr tollinum.  Það verður að játast að pabbi hans var dálítið stressaður.

Afi og amma í Hamravíkinni fóru í sumarbústað ásamt vinafólkinu Gunnhildi og Kristjáni og voru þar í 3 vikur.  Þau komu svo til okkar síðasta laugardag og eru búin að vera hjá okkur síðan.  Strákarnir hafa notið þess og við reyndar líka.

Við skruppum í helgar heimsókn í sumarbústaðinn - Hann er rosalega flottur og var gaman að því.  Við fórum svo í Lalandia og voru allir strákarnir óstöðvandi í vatnsrennibrautunum.  Bergþór fór í fyrsta skipti einn í minnstu renni brautina en pabbi hans var fyrst og Guðmundur stóribróðir á eftir.

Og svo er húsbóndinn kominn í sumarleyfi í rúmar 2 vikur, við eigum eftir að ferðast eitthvað, skreppa til Jótlands og einnig er fyrirhuguð ferð til Norges ef allt fer að óskum.

Einnig hafa framkvæmdir staðið fyrir framan - En það var þannig að pabbi og tengdapabbi voru búnir að reisa hér myndalegan skúr fyrir framan en það átti eftir að setja hurð á hann.  Það kláraðist auðvitað um leið og þau komu úr sumarbústaðnum og er þetta orðið myndalegasti skúr með flottustu hurð í bænum.

4.6.05 - Gestir, Skúr, sumarbústaður

Já það er búið að vera pínulítið að gera; Ágúst, Lóa og strákarnir farnir til Íslands.  Afi Guðmundur var svo fram í vikunna hjá okkur og fór heim á fimmtudaginn.  Amma og Afi úr Hamravíkinni komu á mánudaginn og fóru afarnir í að smíða hús fyrir hjól og svoleiðis.

Í dag fóru svo Amma og Afi úr Hamravíkinni í sumarbústaðinn en við þurftum að skutlast með þeim þangað eftir smá kaffi sopa hjá okkur sem Gunnhildur og Kristján komu auðvitað í.  Flottur sumarbústaður sem þau fengu og óskandi að það fari að stytta upp svo þau geti notið þess betur.

25.5.05 - Fullt hús af gestum

Í dag fluttu Ágúst, Lóa og strákarnir sig til okkar því þau þurfa að þrýfa íbúðina og mála.  Ég held bara að þau hafi líkað málað alla íbúðina í dag því Ágúst og Afi Guðmundur fóru uppeftir eftir kvöldmat að klára.  Pabbi var fjarri góðu gamni því hann þurfti að fara til Stokkhólms.  Strákunum finnst þetta bara mjög gaman - sofa allir í herberginu hans Bergþórs og Guðmundar því Ágúst og Lóa eru í herberginu hans Kristófers.

Afi Guðmundur kom í gær - Mjög gaman að fá hann til okkar.  Hann ætlar að byrja á að hjálpa Ágústi og vera svo í afslöppun (það heldur hann) þangað til hann fer heim.

23.5.05 - Gámurinn kominn

Jæja - Ágúst og Lóa fengu gáminn í morgunn og þá er bara að hefjast handa og pakka í hann.  Afi Guðmundur að koma á morgunn og hjálpa til við að klára að pakka í hann.

8.5.05 - Maí kominn og ekkert búið að skrifa í mánuð.

Já það er mikið búið að vera að gera, haldið áfram fyrir framan og unnið í því að taka girðingar, mold og fleirra burtu.  Á föstudaginn var farið og keypt girðingaefni og í dag var hafist handa við að bera á það (svart).  Vonandi er hægt að helluleggja í vikunni og klára þetta næstu helgi.

Í lok mánaðarins var farið til Söndreborgar því Viðar og Guðbjörg voru að flytja.  Ég held svei mér þá að hann hafi búið á 7 hæð en ekki 4 eins og hann hélt fram.  Sem betur fer er nýja íbúðin á jarðhæð.  Á Laugardeginum bættust Ágúst og Lóa í hópinn en Ágúst hafði skilað Masters ritgerðinni á föstudeginum.  Á Sunnudeginum var svo farið í Legoland með krakkanna og var það mikið fjör.

Ótrúlegt hvað tíminn líður - Ágúst og Lóa fara að flytja heim og við búinn að vera að vinna í stéttinni fyrir framan húsið.

1.4.05 - Mikið stendur til

Já á "april fools day" þá skruppum við að kanna með lyftu og fleirri áhöld á leigu.  Mikið stóð til og þegar dagurinn var úti þá voru bæði stóru og litlu börnin búin að fá að leika sér - og tvö tré fallinn.  Sjá nánar á myndasíðu.

Þess má geta að nágranni okkar er hæst ánægður, töluvert meiri birta í eldhúsinu hjá þeim strax og svo geta þau notið morgunn sólarinnar fyrir framan hjá sér.

27.3.05 - Tekið til

Já það þarf að taka til í geymslunni og í dag var rokið í það.  Allt tekið út og endurraðað og svo gengið frá aftur.  Sett var upp borð og fleirra til að hafa betra aðgengi.  Sjá myndir undir mars

26.3.05 - Gleðilega páska

Páskadagur rann upp með hefðbundnum hætti - Strákarnir leituðu að litlum eggjum um alla stofu.  Það voru góðar heimtur þetta árið en það fundust 16 af 16 földum eggjum.  Við borðuðum svo ávaxtamorgunmat og ætli verið svo ekki eitthvað af súkkulaði þar sem dagurinn er nammidagur.

Kristófer fékk málshátt "Það er tungunni tamast sem hjartanu er kærast"

Bergþór fékk málshátt "Tunguna er torvelt að temja"

25.3.05 - Grillið sett í gang

Jæja - loksins - Grillið sett í gang í dag.  Fórum og keyptum gas og svo var grillið pússað og sett í gang.  Nú getum við sagt að það sé að verða gesta hæft, bara eftir að skreppa á grensan að fylla á kæliskápinn

23.3.05 - Heimsókn í Lalandia

Í dag, Skírdag, skruppum við í dagsferð í Lalandia.  Fórum við í vatnalandið og vorum það lungað úr deginum.  Borðuðum svo pitsur á Papas sem er staður þar og keyrðum svo heim.  Myndir eru undir Mars 2005.

19.3.05 - Það hyllir í sumar

Í dag var fyrsti dagurinn sem kveikt var á loftkælingunni í bílnum - Við skrupum til Ingu Rósar og Halldórs og skein sólin svo glatt á leiðinni að það varð ansi heitt í bílnum.  Martin kom með okkur til baka og ætlar að gista eina nótt hjá okkur.

16.3.05 - Víkingar hafa yfirtekið Noddebo

Víkingar hafa gert árás á leikskólann Noddebo á Solrod Strand.  Þessir stór hættulegu Norrænu víkingar hafa yfirtekið með hervaldi og var eins gott að foreldrar pössuðu sig þegar þeim var boðið í heimsókn.

6.3.05 - Vetur konungur ræður ríkjum

Það er til snjór í Danmörku líka - Það var meira að segja hægt að setja sig í tímabundna töf hjá Ingu Rós og Halldóri þegar við skruppum til þeirra í dag.  Fleirri myndir undir mars en mátti til að setja þessa af kagganum hér.

11.2.05 - Fyrsti í afmæli hjá Kristófer Má

Í dag kom bekkurinn hans Kristófers í afmæli til hans og voru samtals 13 9 ára krakkar hér hjá okkur í 3 tíma.  Eins mikið og heimilsföðurnum kveið fyrir þessu þá rann þetta ótrúlega hratt í gegn og gekk vel enda mjög þægir krakkar (hvað eru kennarar að kvarta).  Myndir eru komnar á netið undir febrúar.

Annars hefur árið runnið af stað með hefðbundnum hætti og lítið annað gerst.  Ásta fór heim um 20. janúar.  Hún fer aftur til Íslands þann 19. og ætlar að taka drengina með.
 

9.1.05 - Gleðilegt Nýtt Ár

Jæja þá er nýja árið runnið upp og hlutirnir farnir að ganga sinn vanagang.  Strákarnir byrjaðir í sínum skólum og gestirnir farnir heim (smá söknuður).  Það er alltaf gaman þegar gestir koma en smá söknuður þegar þeir fara.

Um helgina núna komu Viðar og Gugga og tóku bílinn sinn en við höfum verið að geyma hann meðan þau voru á Íslandi.  Þau ætluðu að stoppa í smá kaffi (við reyndar plönuðum mat) en vegna veðurs þá urðu þau að gista þar sem báðar brýrnar yfir til Jótlands voru lokaðar.  Þau náðu svo að leggja af stað í morgunn en þá var allur vindur úr Kára.

2.1.05 - Guðmundur farinn heim

Já í dag var fyrsti í söknuði þegar Guðmundi var skutlað á völlinn.  Hann var heppinn því tengdaforeldar Ágústar; Salla og Reynir ásamt Gunnar (yngsta syninum) voru að fara heim með sömu flugvél.  Bergþór og Lalli skutluðu honum á völlinn eftir stutt stopp í Fields þar sem útsölurnar voru byrjaðar.

Auðvitað vildi hann fá ommilettu einn morgunmatinn

Á morgunn fara svo Gunna og Baddi þannig að þá verður orðið heldur tómlegt.

31.12.04 - Gamlársdagur

Í dag verður haldið matarboð þar sem verða 14 manns - Ágúst og fjölskylda ásamt tengdaforeldrum.

27.12.04 - Guðmundur kominn

Já það var sko spenningur hjá Bergþóri í dag þar sem Guðmundur átti að lenda um hádegi.  Eitthvað var Guðmundur líka búinn að vera kvíðinn en þetta er í fyrsta skipti sem drengurinn ferðast á fylgdar - Hann er jú orðinn 12 ára gamall (ekki það að Lalli sé degi eldri en í fyrradag).  Guðmundur ætlar að vera hjá okkur þangað til á næsta ári og njóta þess að skjóta flugeldum í Danmörku.

24.12.04 - Gleðileg Jól

Í dag var farið norður til að sjá snjóinn allan og skipt á jólapökkum við Ágúst, Lóu, Berg Daða og Loga Þór.  Þar var allt á kafi í snjó þótt tún hér syðra séu hreinlega græn.

Jólin voru svo haldin með hefðbundnum hætti og pakkar opnaðir (loksins ef strákarnir eru spurðir).

23.12.04

Í dag var verið út um allt.  Við byrjuðum niður í Dalmose hjá Ingu Rós og Halldóri með jólapakka og smá kaffi.  Síðan var haldið í Bilka (hvað haldið þið).  Og loksins var farið heim á leið með viðkomu í miðbæ Köge.  Þegar við vorum komin rétt komin heim þá er dyrabjöllunni hringt og þar standa

engin önnur en Gunna og Baddi.  Auðvitað varð glatt á hjalla og miklir fagnaðarfundir.

4.12.04

Í dag var enginn Íslensku skóli þar sem jólaballið er á morgunn í Jónshúsi.  Í staðinn fórum við til Ingu Rósar og Halldórs.  Þar voru bakaðar piparkökur, leikið sér og sungin jólalög.  Vala vinkona Ástu og Ingu Rósar var þar líka og tók þátt í fjörinu.

Svo var farið út í skóg rétt hjá Slagelse og sagað jólatré fyrir báðar fjölskyldur.  Var rölt út í skóg (of langt samkvæmt sumum sem héldu á trjánum til baka ).  Við höfðum leigt kerru (takk Shell DK) til að koma því heim og voru tréin sett á kerruna og haldið aftur heim til Ingu og Halldórs til að smakka á piparkökunum.

Allt tekur enda og þessi dagur líka - Haldið var heim og fékk Vala far en það hafði sprungið á hjólinu hennar á leiðinni suður.  Strákarnir komnir í draumalandið og farnir að safna kröftum fyrir morgundaginn en þá á Kristófer að keppa í körfubolta.

1.12.04

Smá uppfærsla á mynda albúminu fyrir Október. Engin loforð um Nóvember strax en lífið hefur gengið sinn vana hér - Kallinn á ferð og flugi í vinnunni og strákarnir í skólanum.  Frúin auðvitað í sínum skóla og allt rúllar bara.  Hefð hefur komist á að fara á laugardagsmorgnum í Fiskitorfuna meðan að Kristófer er í Íslensku skólanum í Jónshúsi.

21.11.04

Í dag komu 4 konur í heimsókn - Amma Jóna, amma Þórunn, Ella frænka og Ása frænka.  Þær fóru í helgarferð til Kaupmannahafnar og náðum við að plata þær í hádegismat hingað suður í Solrod.  Auðvitað var búið að undirbúa þetta og Lóa og Ágúst voru með í undirbúningnum og komu hér og var Logi Þór í nefndinni sem tók á móti þeim, brosti, hjalaði og lék á alls oddi við þær.

Í gær höfðum við reyndar hitt þær en þá fóru þær í fiskitorfuna og það gerum við líka á laugardagsmorgnum.  Var reyndar undirbúið og sótti Lalli þær á hótelið og fór með í fiskitorfunna.

Á fimmtudaginn var það svo Ásta og Ágúst sem fóru á völlinn til að taka á móti þeim og skutla heim á hótel.

30.10.04

Loksins loksins - Ásta er búin að vera að safna í 3 ár og í vikunni tók hún allt úr koddanum og fór með í IDE og keypti hornsófa í stofunna.

Hér er daman í sófanum nýja og unir sér vel.

Fleirri fréttir og myndir koma mjög bráðlega.

26.9.04

Í vikunni fór mamma til Íslands og kom svo í gær með ömmu og afa úr Hamravíkinni.  Þau komu með gamla hjólið hans Kristófers og nú getur Bergþór notað það.

Afmælið hans Bergþórs Arnars er á morgunn en við höldum upp á það í dag.  Drengurinn var orðinn svo spenntur að það þurfti að leyfa honum að opna pakkanna strax í morgunn.  Hann hefur samt verið þolinmóður því amma og afi í Keflavík skildu eftir pakka sem hann vissi af allan tímann.

20.9.04

Nýr strákur kominn í fjölskylduna - Ágúst og Lóa eignuðust strák á laugardaginn var.  Þetta er auðvitað hinn myndalegasti strákur og tekur greinilega það besta frá báðum ættum.

Helgin byrjaði á laugardagsmorning með því að Ágúst vakti okkur kl. 07:28 og spurði hvort við værum til í að koma og passa eða sækja Berg Daða.  Við héldum það nú og brunaði Lalli að sækja hann.  Bergur Daði var alveg með það á hreinu frá upphafi að hann ætlaði að gista og lét okkur reglulega vita af því um daginn.  Greinilega var þetta eitthvað gaman því hann var á tímabili kominn í tvær nætur. Ég held samt að honum hafi þótt þetta ágætt því hann kom svo í hin skiptin og sagði foreldrunum að það væru læti í strákunum.

Við höfum verið frekar róleg að skrifa undanfarið en það hefur svo sem verið nóg að sýsla.  Kristófer Már er í skólanum og gengur bara vel.  Honum fer stöðugt fram í dönskunni og eru kennararnir ánægðir með hann.  Honum finnst einnig gaman í skólanum og á skóladagheimilinu en hér í Danmörku eru börn allt að 14 ára þar og ekkert tiltökumál.

Bergþór Arnar byrjaði á leikskóla í byrjun mánaðarins og hefur bara gengið vel.  Hann var rosalega þreyttur fyrstu daganna þrátt fyrir að vera bara stutt en líklega er það tungumálið sem er að spila inn í það.  Í dag fer hann um 08:45 og við sækjum hann um 15:00 og er misjafnlega þreyttur.

Guðmundur er kominn í kennaraverkfall heima á Íslandi og heyrðist okkur um helgina að honum þætti það nú ekkert sérstaklega leiðinlegt.

Af okkur hjónunum er allt gott, Lalli mest í vinnunni og Ásta að koma strákunum fyrir - síðan fer skólinn að byrja.

24.8.04

Guðmundur á afmæli!  Guðmundur til hamingju með afmælið - Orðinn 12 ára og alltaf að stækka.

Og nú getur Baddi komið aftur - það er búið að mála það sem þú sagðir að ætti að mála áður en þú kæmir.

21.8.04

Í gær komu mamma og pabbi frá Norge og Sverge.  Auðvitað var skellt sér á rúntinn í nýja bílnum (getur verið).

19.8.04

Nýr bíll kominn - ha?  Jú nýji bílinn sem við pöntuðum er kominn - þetta er Hyundai Trajet 7 manna eðal vagn.  Myndir eru í Ágúst 2004 albúminu.  Kallinn á heimilinu er ekkert mikið montinn - bara smá.

13.8.04

Mamma og Pabbi fluttu sig til okkar á miðvikudaginn eftir að hafa verið hjá Ágústi og Lóu í góðu yfirlæti frá vikunni á undan.  Eitthvað hafði Guðmundur litli nefnt hvort þau ætluðu ekki að koma til okkar áður en hann færi heim.

Á miðvikudagskvöldið komu Guðrún Ágústa og Maggi við á leiðinni heim til Noregs.  Við borðuðum öll áður en þau lögðu svo í hann heim til Norge og auðvitað var glatt á hjalla eins og vanalega enda margt að segja frá.  Þetta kvöld voru Guðrún, Maggi, Berglind, Búi, Ari, Amma, Afi, Guðmundur, Kristófer, Bergþór, Mamma og Pabbi í mat og stóð grillið sig með eindæmum vel.

Kristófer gengur vel í skólanum, ótrúlegt hvað hann er duglegur og var að kenna mömmu sinni dönsk orði í gærkveldi.

Í kvöld koma Ágúst, Lóa og Bergur Daði því á morgunn ætla Amma og Afi að leggja af stað og líta á Svíþjóð og Noreg.  Guðmundur fer svo heim á mánudaginn.

Og eitt að lokum - þeir sem ætluðu að kaupa flottasta bílinn á Íslandi - sorry of seint - hann er seldur.

7.8.04

Það hefur mikið gengið á undanfarið.

Fyrst komu mæðgurnar Inga og Birta í heimsókn og það var alveg frábært.  Þær eru alveg frábærar og áttum við mjög góðar stundir hér á Solrod Strand.

Síðan komu Guðrún Ágústa og Maggi og fjölskylda.  Ekki voru það minni fagnaðarfundir hjá drengjunum okkar að hitta Berglindi, Baldvin Búa og Ara.  Ýmislegt var gert meðan þau voru hér, rúntað og farið í garð um 30 mínútur suður af okkur.  Einnig var farið í BonBonLand (getur verið :) - Síðan má náttúrulega ekki gleyma skemmtilegum spjöllum inn á milli og á kvöldin.

Síðan en ekki síst komu svo Amma og Afi úr Keflavík á Miðvikudaginn og fóru Pabbi og Guðmundur á völlinn.  Ágúst var þar líka því þau gista hjá þeim í nokkrar nætur fyrst.

Kristófer byrjaði í skólanum á miðvikudaginn og hefur gengið vel - Ásta hefur farið með honum til að hjálpa af stað en skildi hann eftir á föstudaginn og gekk það vel.  Hann segir að hann þurfi ekkert að hafa neinn meira með sér en Ásta fer allavega með hann á mánudaginn.

Myndir af þessu öllu eru að koma -

28.07.2004

Í gær komu Inga og Birta í heimsókn og gista þær núna hjá okkur.  Auðvitað var grillað og spjallað fram eftir kvöldi enda ekki nema von þar sem langt er síðan við hittum þær og margar fréttir.  Við ætlum að halda í þær eins lengi og við getum og settum upp besta gestarúmmið sem við eigum.

Í gær vorum við í bílnum og þá spyr Kristófer mömmu sína "Hvernig á ég að segja Takk á dönsku?"  Mamma svarar að maður segir bara "Takk".  Þá gellur í Bergþóri "Nei, maður segir ekki svona.  Maður segir Tak skal du har" og viti menn það var bara með framburði og allt (ekkert R hljóð í endan). Eitt er víst að ekki voru það foreldrarnir sem kenndu honum þetta og hann er ekki enn byrjaður á leikskólanum þannig að litli maðurinn er þarna lægstur í loftinu og hlustar og horfir á allt sem fyrir augun ber.

25.07.2004

Þá kom að því

Fjölskyldan komin til Solrod Strand og kassarnir alveg að klárast.  Ótrúlegt en satt að þá skemmdist í raun ekkert.  Ekki að spyrja að svo sem því við vorum með sömu pakkara og áður (vanir menn) og þetta kom nánast allt heilt úr gámnum.

Eitthvað hefur samt gengið erfiðlega að koma heimasíðunni af stað eftir góða byrjun að ná í netfangið brostu.dk.  Við erum þó öll komin með netfang núna og eru strákarnir að senda sín fyrstu bréf þessa daganna. 

Ásta komst á netið almennilega í síðustu viku og er allt annað að sjá hana eftir það.  Við fengum nefnilega ADSL-ið loksins og gátum þá tengt 2 tölvur í einu.  Aukavélin var reyndar búin að vera eitthvað lasin eftir að fá á sig vírus og var fljótlegasta leiðin að setja hana upp á nýtt.

 

Okkur líður bara vel, strákarnir að eignast vini allt í kring og farnir að spjalla á "dönsku" en það er alveg ótrúlegt hvað þeim tekst að gera sig skiljanlegan.  Guðmundur reddar sér hins vegar á ensku og stundum er túlkað frá Íslensku yfir á Ensku og þaðan á Dönsku ef litlu og stóru krakkarnir eru að leika saman.

 

Við skelltum inn myndaalbúmi svona til að prófa en það verður að játast að heimilsfaðirinn er að stíga sín fyrst skref í þessu og tekur þetta því smá tíma.

 

Gestabókin hefur verið endurbætt svo endilega skrifið þar inn.

Júlí 2004

Nú eru allir komnir út og sumir farnir heim aftur.  Okkur líður bara vel, strákarnir að eignast vini allt í kring og farnir að spjalla á "dönsku" en það er alveg ótrúlegt hvað þeim tekst að gera sig skiljanlegan.  Guðmundur reddar sér hins vegar alltaf á ensku og stundum er túlkað frá Íslensku yfir á Ensku og þaðan á Dönsku ef litlu og stóru krakkarnir eru að leika saman.

Við skelltum inn myndaalbúmi svona til að prófa en það verður að játast að heimilsfaðirinn er að stíga sín fyrst skref í þessu og tekur þetta því smá tíma.

Júní 2004

Það voru náttúrulega hellingur af fólki sem mætti til að sjá til þess að þetta gengi nú vel fyrir sig. Bestu þakkir til ykkar allra:

Ragnar og Guðrún eða mamma og pabbi,

 Guðmundur og Jóna eða mamma og pabbi,

Friðrik, Ragnar (yngri) og Kristín,

Kári og Guðný

og síðast en ekki síst Guðmundur, Kristófer og Bergþór sem stóðu sig vel

Allt er komið í gáminn og gámurinn farinn frá Íslandi. Sjá mynd hér til hliðar.